Skálmöld á Stöng 4. febrúar 2012 (laugardagur) Skálmöld leikur á tvennum tónleikum á Gauki á Stöng laugardaginn 4. febrúar. Fyrri tónleikarnir hefjast... [meira]
Skálmöld
Atrum
Angist
Skálmöld (fyrir alla aldurshópa) 4. febrúar 2012 (laugardagur) Skálmöld leikur á tvennum tónleikum á Gauki á Stöng laugardaginn 4. febrúar. Fyrri tónleikarnir hefjast... [meira]
COC Gítarleikari og söngvari hljómsveitarinnar Corrosion Of Conformity, Pepper Keenan, var áður í hljómsveitinni, Graveyard Rodeo, en hættir áður en bandið tók upp sína fyrstu plötu.
27. janúar 2012 fös. | Skrifa athugasemd | Valli Örviðtal - Karl í Muck Örviðtölin halda áfram með stæl, því næst er komið að hljómsveitinni Muck, en ég sendi nokkrar spurningar á Karl Torsten Ställborn og hann svaraði um hæl.. með sæl...
sælir drengir hvað er að gerast í herbúðum Muck þessa dagana? - Hvenær mun hún loksins verða gefin út og hvað er langt síðan að þið byrjuðuð að vinna í henni?
Við erum að gefa ut plötu sem mun bera nafnið Slaves og á henni eru heil 14 tracks. Við erum búnir að vinna endalaust í þessu og núna er hún loksins að koma út.
Við fáum hana í fangið í enda janúar og við erum ekkert smá spenntir fyrir því.
Þetta ferli er búið að taka heil tvö ár og spennan er því farin að magnast mjög.
Verða ekki örugglega útgáfutónleikar?
Útgáfutónleikar eru í býgerð. Við ætlum að halda flotta tónleikaveislu með nokkrum vel völdum hljómsveitum og vinum. Það mun byggilega vera í byrjun mars.
Hvað tekur svo við?
Í vor ætlum við að vera duglegir að spila og kynna plötuna á fullu. Við erum að tala við aðila erlendis sem eru til í að gefa út og bóka okkur.
Við erum með nóg af nýjum lögum og ætli við dembum okkur ekki bara í upptökur á nýrri plötu sem fyrst.
Okkur langar bara að fara með þetta alla leið, ekkert kjaftæði. Þetta er það sem við viljum gera. hardkjarni.com
26. janúar 2012 fim. | Skrifa athugasemd | Valli Örviðtal - Plastic Gods Annar skammtur dagsins af örviðtölunum er kominn í gang. Ég sendi nokkrar spurningar á Dagur Kaveh Radmanesh og hafði þetta að segja:
Hvað er að gerast í herbúðum Plastic Gods þessa dagna?
Við erum bæði að vinna í því að klára þriðju plötunna okkar sem mun koma út eitthvern tíman á þessu ári og að vinna að nýju efni sem mun vonandi líta dagsins ljós snemma í vor, allavegana fær fólk eitthvað smakk af því á næstu mánuðum.
Hvaða mannabreytingar voru í bandinu á seinasta ári?
Í fyrra urðu engar mannabreytingar, prófuðum tvo trommara þar sem að Höskuldur bjó í Hollandi og við áttum ekkert von á honum aftur í eitthvern tíma en hann kom aftur og var það vel þegið.
Hvernig voru viðtökurnar við plötunni ykkar sem var gefin út í fyrra?
Viðtökurnar voru alveg þokkalegar við vorum bara ekki nógu duglegir að koma henni á framfæri sjálfir. Það var margt sem betur hefði mátt gera sérstaklega varðandi hljóðið en hún hefur ákveðið gildi fyrir okkur þar sem þetta efni er komið vel á aldur. Þetta átti að vera fyrsta platan okkar en við ákvaðum að bíða með hana.
Hvar er hægt að nálgast boli eða plötuna ykkar?
plöturnar og bolirnir eru í sölu hjá Smekkleysu geisladiskabúð, geisladiskabúð valda og 12tónum á skólavörðustíg og einnig er hægt að hafa samband við okkur á icelandicdoom@gmail.com
Eruð þið vínil nördar? er von á plötunni á vínil formatti?
Það er auðvitað mun skemmtilegra að gefa út á vínyll og notagildið þeim mun lengra en á geisladisk. Ég get nú ekki sagt að við séum vinyll nördar en við höfum rætt það að það væri gaman að pressa Plastic á vínyll. Við sjáum hvað gerist það er aldrei að vita.
Hvað er planið með tónleika á árinu?
Það verða jú eitthverjir tónleikar, stefnum á Akureyri eitthvern tíman á árinu og svo er aldrei að vita kannski spilum við á Eistnafluginu. Okkur langar aðsjálfsögðu út að spila þannig við ætlum að vinna í því og vonandi náum við eitthverjum túr. En annars er mjög ófyrirsjáanlegt hvenær eða hvar við spilum á þessu ári.
26. janúar 2012 fim. | Skrifa athugasemd | Valli Pelican Hægt er að nálgast glænýtt lag hljómsveitarinnar Pelican á netinu. Lagið heitir Lathe Bioasas og verður að finna á plötunni “Ataraxia/Taraxis“ sem gefin verður út 10 apríl næstkomandi. Umtalað lag er að finna hér: á heimasíðu Spin.com theprp.com
26. janúar 2012 fim. | Skrifa athugasemd | Cancer Bats Fjórða breiðskðífa hljómsveitarinnar Cancer Bats (sem gefin verður út 24. apríl næstkomandi) verður gefin út af Metal Blades útgáfunni í Bandaríkjum Norður Ameríku. Hljómsvetin tók upp þessa nýju plötu ásamt þeim Eric Ratz og Kenny Luong í Vespa Hljóðverinu sem þykir gæða upptökuver þar sem hljómsveitir á borð við Muse, Harem Scarem, Simple Plan og fleiri lista menn hafa tekið upp sitt efni.
Nýja platan hefur fengið nafnið "Dead Set on living" mun innihalda eftirfarandi lög:
R.A.T.S
Bricks and Mortar
Road Sick
Breathe Armageddon
Dead Set On Living
The Void
Old Blood
Drunken Physics
Bastards
Rally The Wicked
New World Alliance theprp.com
26. janúar 2012 fim. | Skrifa athugasemd | Valli Code Orange Kids Deathwish Inc útgáfan tilkynnti nýverið hljómsveitina Code Orange kids til leiks sem nýjastu sveitina á málum hjá útgáfunni. Meðal aldur hljómsveitameðlima er um 18 ár og því mjög áhugavert að heyra hvað þessi unga sveit hefur fram á að bjóða. Útgáfan lýstir sveitinni sem samening á dulinni melódíu og skítugum harðkjarna, ákafa og kraft.
Hér að neðan má heyra tóndæmi af sjötommu plötunni Cycles eftir sveitina sjálfa:
lambgoat.com
26. janúar 2012 fim. | Skrifa athugasemd | Valli Örviðtal - Gyða í Angist Enn halda Örviðtölin áfram! Hér að neðan má lesa það helsta sem er að frétta af hljómsveitinni Angist, en ég tók hana Gyðu Hrund Þorvaldsdóttir tali og þetta er það helsta:
Hvað er að gerast í herbúðum Angist þennan janúar mánuð?
Janúar mánuður hefur farið í það að safna orku eftir annasamt 2011 ár. Við drifum okkur í myndatöku því okkur hefur sárlega vantað nýjar promo myndir af bandinu enda kominn nýr trommari, Tumi Snær úr Ophidian I, og svo höfum við bara verið að skipuleggja árið 2012 hjá Angist.
Nú gáfuð þið út þrælgóða þröngskífu á seinasta ári, hvað verður svo framhaldið? er von á nýju efni frá ykkur á árinu?
Takk fyrir það! Já EP-ið okkar, Circle of Suffering kom út í byrjun október og á henni eru 5 lög sem við höfðum ekki tekið upp áður. Við erum núna að setja í gírinn að semja nýtt efni og vonumst til þess að taka upp plötu seinna á árinu.
Hvernig með tónleika? Nú fóruð þið erlendis á nýliðinu ári, hvernig fór það allt ævintýri?
Já við erum búin að spila á ansi mörgum tónleikum á árinu 2011 og var að sjálfsögðu hápunkturinn tónleikaferðalagið okkar til Frakklands. Okkur var boðið á þennan túr af frönskum tourmanager sem sér um bönd eins og L'esprit du Clan og hituðum við upp fyrir þá á þremur af fimm tónleikum þarna úti. Að fá tækifæri að spila svona úti er að sjálfsögðu alveg frábært og góð reynsla fyrir okkur að spila kvöld eftir kvöld og alltaf fyrir nýjan hóp af fólki sem hafði kannski aldrei heyrt í okkur.
Hvað er næst á dagskrá hjá Angist?
Fyrir utan að koma með nýtt efni erum við að fara að spila með vinum okkar í Skálmöld núna 4. febrúar á Gauknum og síðan helgina eftir það erum við að fara að spila á fjáröflunartónleikum hjá Bloodfeud strákunum í TÞM og það má búast við miklum hressleika þar! Í haust förum við svo aftur til Frakklands og hvað gerist þess á milli verður bara að koma í ljós! hardkjarni.com
25. janúar 2012 mið. | Skrifa athugasemd | Valli Örviðtal - Gunnar B. Guðbjörnsson Í tilefni að hið frábæra myndband hljómsveitarinnar Sólstafir við lagið Fjara er komið í opinbera spilun er tilvalið að spjalla við annan leikstjóra verksins um lífið og tilveruna....
Fyrst og fremst til hamingju með Sólstafamyndbandið, svona flott myndband hefur ekki sést í heimi þungarokkara á íslandi.
Takk fyrir það, markmiðið var náttúrulega að taka þetta á nýjann level, sem er líka eins gott þegar maður er að vinna með 7mín langt lag þá þarf myndbandið að vera geðveikt til að fólk nenni einfaldlega að horfa á það í gegn…er ekki talað um að athygli fólks á netinu eru 30sec til 3mín max ?
Hvernig fór samstarf þitt við Bowen Staines fram við gerð myndbandsins?
Heyrðu, mig minnir að Bowen hafi komið með þessa hugmynd til mín í júlí 2011, þá höfðu Sólstafa strákarnir komið til hans og talað um að það væri gaman að gera eithvað epískt, enda er allt epískt við Sólstafi, meira það sem fer úrskeiðis er
epískt. í fystu var ég skíthræddur um að þetta myndi enda sem eithvað ógeðis náttúru rúnk en við unnum söguna mjög mikið með Sólstöfum og vorum sammála um að fara þessa leið og reyna gera eithvað fallegt en töff .
Við Bowen höfum annars alltaf unnið vel saman, erum helvíti gott team bara, lang fjölbreyttnasti og hæfileikaríkasti kvikmyndagerðarmaður sem ég þekki…Við ætlum bara að halda áfram að vinna saman
Hvað tók myndbandið lagan tíma að vinna (bæði tökur og klipping og allt sem fylgir)
Þetta tók allt sirka 3mánuði frá því að við byrjuðum að skjóta og þangað til klippingu lauk…þetta voru 8 tökudagar allt í allt, Við lentum tvisvar í því að þurfa snúa aftur heim vegna veðurs og allskonar vesen…enda gerist ekkert eðlilegt í kringum Spinal Tab íslands Eftir vinnslan sjálf var gríðarlega flókin og tók mjög langan tíma enda búið að eiga við öll skot í myndbandinu, fela hluti, bæta við og allskonar stælar…en útkoman er flott
Tekur þú að þér að gera myndbönd sem þetta reglulega?
Reyndar ekki…Ég er almennt hrifnari af performance videóum…það er kanski því að ég kann ekki að spila á hljóðfæri sjálfur og finnst það að spila á hljóðfæri
ógeðslega töff..að fara á tónleika er það skemmtilegasta sem ég geri og ef manni tekst að fanga stemminguna og orkuna á góðum tónleikum finnst mér það alltaf
soldið magnað…en ef rétt band með rétt lag kemur og bankar þá getur maður ekki sagt nei…
Hvað er að frétta af Sleepless í Reykjavík þáttunum?
Heyrðu vegna brjálaðra anna frá því í okt (airwaves) og til dagsins í dag nánast þá hef ég bara ekki getað klárað síðasta þáttinn af Sleepless…sem er auðvitað bara skammarlegt…En það er oft þannig að haustin eru brjáluð…sumrin frekar róleg kanski, þá hefur maður tíma fyrir sín verkefni meira… En til stendur að klára þáttinn sem fyrst, lofa mögnuðum þætti!
Hvað er næsta stóra verkefnið þitt?
Núna er ég akkurat að losna úr mjög stóru verkefni hjá Sagafilm þar sem ég vinn alla jafna sem freelance klippari og tökumaður, var að klára að klippa 10þætti af "Í nýju ljósi með Kalla Berndsen" fyrir Stöð 2 þetta er flaggskipsþáttur Stöð 2 í augnablikinu (takk Gillz) og pressan
þessvegna búin að vera gríðarleg…
Næst er ég líklega að fara klippa verðlauna innslögin í Edduna…
En næsta verkefni hjá Sleepless In Reykjavík Productions er að stjórna upptöku á útgáfutónleikum Sólstafa sem verða gefnir út á DVD, eftir það erum við að framleiða tónlistar vídeó fyrir Ghostigital með Kitty Von Sometime úr Weird Girls Projectinu og klára tökur á Dikta tónlistar vídeói með strákunum í Draft…Svo kemur Bowen til Íslands um miðjan Feb, þá gerum við eithvað geðveikt saman
Hvað ertu að hlusta á þessa dagana?
Ég hef ekki verið duglegur að hlusta á tónlist síðan hreinlega í kringum
Airwaves…nema það sé vinnu tengt kannski Sólstafi hef ég mikið hlustað á undanfarið þó, skiljanlega
Nýja platan með Árstíðum er flott, Óli Arnalds að gera spennandi hluti með þeim í stúdíóinu…útgáfu tónleikarnir þeirra voru líka magnaðir
Nýja platan með Lamb of god tékkaði ég á og afskrifaði eiginlega strax…þarf þó að leifa henni að renna einu sinni enn þegar ég tel í mig kjark til að gera það...
Svo er ég að kynna mér Lifun með Trúbrot hardkjarni.com
25. janúar 2012 mið. | Skrifa athugasemd | Valli Örviðtal - Norn Eftir að hafa skemmt mér við pbppunk.com síðuna kom lítið annað til greina en að taka smá ÖRviðtal við hljómsveitina NORN. Fannar Örn Karlsson svaraði nokkrum spurningum fréttaritara harðkjarna varðandi sveitina....
Hljómsveitin Norn skaut up kollinum nýverið, segðu mér nánar frá hljómsveitinni norn, hverjir eru í sveitinni og hvernig tónlist spilið þið?
Norn byrjaði árið 2009 sem lítið hliðarverkefni hjá mér og Alexöndru, söngkonu bandsins. Við hlustuðum vandræðalega mikið á Christian Death og Wipers á þessum tíma og okkur langaði að gera eitthvað sem endurspeglaði það. Við tókum upp nokkur lög og gáfum út á netinu. Svo fyrir rúmu ári síðan fengum við Júlíönu, sem spilaði með okkur í Tentacles of Doom, til þess að spila á bassa og vinkonu okkar Önnu Guðnýju, til að spila á gítar og þá fyrst urðum við heilsteypt band. Núna erum við að þróa okkar eigin drugapönk hljóm.
Þið gáfuð út plötu á seinasta ári, segið mér nánar frá plötunni.
Já við gáfum út kassettu núna í haust sem ber engan titil á Paradísarborgarplötum (PBP). Við tókum hana reyndar upp í Febrúar í fyrra en það gekk mjög illa að bóka tónleika.
Hvar getur maður nálgast plötuna ykkar?
Hún er til sölu á 500 kr. í Geisladiskabúð Valda og svo á öllum tónleikum sem við spilum. Ég er líka oftast með hana á tónleikum Ofvitanna og MVNVMVNTS. Svo er hægt að hala henni niður frítt á www.pbppunk.com eins og alla aðra PBP titla.
Hvernig tókust útgáfutónleikarnir í Hinu Húsinu?
Bara mjög vel. Hitt húsið var að koma merkilega vel út sem tónleikastaður. Þessi salur í kjallaranum hefur sína vankanta en þetta var bara frekar kúl. Það mætti líka slatti af fólki og svona og við seldum nokkrar spólur.
Hverjir eru helstu áhrifavaldar hljómsveitarinnar?
Christian Death, Wipers, Rudimentary Peni, Antischism, Huggy Bear, Vonbrigði, Killing Joke, The Chameleons, The Cure, Joy Division, Flux of Pink Indians, The Misfits o.fl.
Hvað er næst á dagskrá fyrir hljómsveitina Norn?
Við erum búin að vera í dálítið langri pásu núna vegna prófa, jóla og æfingarhúsnæðisflutninga en við ætlum að fara í gang aftur á næstu dögum og klára að semja lög fyrir nýja útgáfu. Minn draumur væri að ná að gefa út aðra kassettu í Apríl. Já og svo ætlum við að reisa óvinahljómsveit okkar, metalbandinu Norn, níðstöng. hardkjarni.com
24. janúar 2012 þri. | Skrifa athugasemd | Valli Mastodon - Dry Bone Valley Myndband við lagið Dry Bone Valley er nú komið á netið, en myndbandið var unnið af listamanninum Tim Biskup. Myndbandið er þriðja myndband hljómsveitarinnar af Hunter plötunni (áður til myndbönd við lögin Deatbound og Curl of the burl). Hægt er að sjá myndbandið hér að neðan:
theprp.com
24. janúar 2012 þri. | Skrifa athugasemd | Valli Örviðtal - Severd Crotch Þá er kominn tími á örviðtölin! Fyrstur til að svara var enginn annar en Ingólfur ólafsson, eða Ingó í Severed Crotch. Hér að neðan má lesa allt það sem er að frétta af Severed Crotch í byrjun ársins 2012.
Sælir! Nú hef ég lítið tekið eftir hljómsveitinni Severed Crotch síðan að hin frábæra The Nature Of Entropy kom út, hvað er helst í fréttum af sveitinni þessa dagana?
Gunni trommari var að koma aftur til landsins núna í haust og við erum byrjaðir að æfa og koma okkur í form aftur. Mér skilst að platan er að seljast ágætlega hjá Amputated Vein Records og við erum svona að skoða hvað næsta skref er.
Eruð þið eitthvað að vinna í nýju efni?
Já við erum með nokkur ný lög í vinnslu. Við stefnum á að einbeita okkur alfarið að nýju efni um leið og við erum komnir í toppform aftur.
Nú eru einhverjir ykkar í einhverjum hliðarverkefnum, hvaða sveitum eruð þið líka í?
Ég (Ingólfur) er í nokkrum böndum. Ég er í Manslaughter og Plastic Gods, en er í smá fríi frá þeim í augnablikinu til að einbeita mér að dauðarokkinu og skólanum. Svo er ég einnig í Ophidian I sem er ung sveit sem spilar teknískt dauðarokk og samanstendur af meðlimum úr Beneath, Dysmorphic, Angist og Severed Crotch. Við erum að vinna í plötu sem mun koma út á SFC records seinna í vor.
Svo er Ingvar gítarleikari auðvitað að gera gott með Momentum og mér skilst að hann sé einnig að prufa sig áfram í einhverju öðru bandi. Tóti og Kjarri eru svo að spila Death 'n' Roll með honum Unnari Bjarnasyni úr Sororicide.
Er ekki von á tónleikum með ykkur á næstunni?
Jú við erum einmitt að skoða staðir og dagssetningar fyrir "endurkomu gigg". Okkur gengur vel að æfa okkur upp, þannig að vonandi er ekki mjög langt í tónleika hjá okkur.
Hvað er plan sveitarinnar fyrir árið 2012
Fyrst og fremst ætlum við einbieta okkur að því að semja efni fyrir nýja plötu og reyna halda tónleika í lágmarki. En við látum auðvitað sjá okkur á Eistnaflug í sumar og erum óðir í að skreppa til útlanda og spila. hardkjarni.com
24. janúar 2012 þri. | Skrifa athugasemd | Valli Sólstafir - Fjara í hágæðum Hægt er að horfa á nýtt myndband hljómsveitarinnar Sólstafir við lagið Fjara sem frumsýnt var núna í mánuðinum í hágæðum (HD). Myndbandinu var leikstrýrt af þeim Bowen Staines og Gunnari B. Guðbjörnssyni, en lagið sjálft er að finna á nýjustu breiðskífu sveitarinnar Svartir Sandar.
Hægt er að horfa á myndbandið hér að neðan, eða með því að smella hér
24. janúar 2012 þri. | Skrifa athugasemd | Valli Goatwhore - Blood from the master Hljómsveitin Goatwhore er tilbúin með nýja breiðskífu sem fengið hefur nafnið "Blood from the master". Platan verður gefin út af Metal Blade útgáfunni 14.febrúar næstkomandi. Efnið verður gefið út á vínil, geisladisk og einnig stafrænt, en vínil útgáfan verður einkar áhugaverð þar sem þrjár útgáfur af vínil verða gefnar út. Nýja pltan var tekin upp í Mana upptökuverinu í St. Petersburg í Flórída fylki en það var Erik Rutan sem vann plötuna með bandinu.
Lagalisti plötunnar er eftirfarandi:
01. Collapse In Eternal Worth
02. When Steel And Bone Meet
03. Parasitic Scriptures Of The Sacred Word
04. In Deathless Tradition
05. Judgement Of The Bleeding Crown
06. Embodiment Of This Bitter Chaos
07. Beyond The Spell Of Discontent
08. Death To The Architects Of Heaven
09. An End To Nothing
10. My Name Is Frightful Among The Believers
blabbermouth.net
23. janúar 2012 mán. | Skrifa athugasemd | Valli Terror - The New Blood Hljómsveitin hefur Terror hefur sent frá sér nýtt myndband við lagið The New Blood. Lagið er tekið af plötunni Keepers of the faith frá árinu 2010. Myndbandið virðist vera virðingavottur til áhrifavalda sveitarinnar, en það eru (samkvæmt myndbandinu) Murphy's Law, Suicidal Tendencies, Merauder, og í rauninni allt sem hefur talist hardcore síðastliðna áratugi. Myndbandið má sjá hér að neðan:
theprp.com
23. janúar 2012 mán. | Skrifa athugasemd | Valli Strife með nýja plötu Samkvæmt twitter færslu meðlima hljómsveitarinnar STRIFE hefur sveitin lokið forvinnslu á 11 nýjum lögum. Sveitin segir að ný plata verði tilbúinn að fyrr en áætlað hafi verið og að von sé á stórum fréttum frá sveitinni núna í vikunni? Twitter.com
23. janúar 2012 mán. | Skrifa athugasemd | Valli Eistnaflug Þær hljómsveitir sem hafa áhuga á því að spila á helstu tónlistarveislu íslenkra rokkara þetta árið, Eistnaflugi, verða að hafa hraðann á því að umsóknarfresti er að ljúka. Eistnaflug verður haldið hátíðlegt þetta árið 12 - 14. júlí. Twitter.com
23. janúar 2012 mán. | Skrifa athugasemd | Valli Converge taka upp plötu Tvöföldu Íslandsvinirnir í hljómsveitinni Converge ætla að eyða deginum í dag að hefja upptökur á nýrri breiðskífu. Eins og fyrri útgáfur er efnið á plötuna tekið upp í bænum Salem í Massachusetts fylki, en það er sem fyrr Kurt Ballou gítarleikari sveitarinnar og eigandi GodCity hljóðfersins sem fyrir hönd sveitarinnar í upptökumálum. Það má því gera ráð fyrir því að í september eða október á þessu ári verði komin út ný Converge plata. lambgoat.com
21. janúar 2012 lau. | Skrifa athugasemd | Valli Sikth saman á ný? Breska hljómsveitin Sikth virðist stefna á endurkomu, en sveitin opnaði í vikunni nýja fésbókarsíðu þar sem hún tilkynnti að kvattning aðdáenda sinna væri að virka. Í kjölfarið að sveitin væri að vinna að nýjum fatnaði merktri sveitinn og sögðu í kjölfarið að það yrði ný plata með svetinni. VIð þetta var bætt að sveitin ætti tilbúna riffa frá seinustu plötu og væri því með ágætt forskot þegar vinnsla á næstu plötu hefst. Hér að neðan má sjá fésbókarsíðuna umtöluðu: http://www.facebook.com/sikthofficial metalsucks.net
20. janúar 2012 fös. | Skrifa athugasemd | Valli Soulfly með nýja plötu í mars Hljómsveitin Soufly sendir frá sér plötuna Enslave í mars mánuði en það er Roadrunner útgáfan sem gefur efni sveitarinnar út. Á plötunni verður eitthvað um gesti, þar á meðal þá Dez Fafara (DevilDriver go Coal Chamber) og Travis Ryan (Cattle Decapitation). Hér að neðan má sjá lagalista plötunnar:
CD
01 – “Resistance”
02 – “World Scum”
03 – “Intervention”
04 – “Gladiator”
05 – “Legions”
06 – “American Steel”
07 – “Redemption Of Man By God”
08 – “Treachery”
09 – “Plata O Plomo”
10 – “Chains”
11 – “Revengeance”
20. janúar 2012 fös. | Skrifa athugasemd | Valli Bleeding through Það styttist í nýja útgáfu frá hljómsveitinni Bleeding Through, en nýja platan hefur fengið nafnið The Great Fire og verður gefin út af Rise records útgáfunni 31.janúar næstkomandi. Hægt er að hlusta á lagið Goodbey to death af þessarri skífu hér að neðan:
lambgoat.com
18. janúar 2012 mið. | Skrifa athugasemd | Valli Meshuggah - Koloss Eins og fram hefur komið í fréttum hér á harðkjarna er von á nýrri breiðskífu frá hljómsveitinni Meshuggah í lok mars mánaðar, en skífa þessi verður gefin út af Nuclear Blast útgáfunni. Koloss verður gefin út í eftirfarandi útgáfum:
Koloss + MAGIC CUBE með bæði CD og DVD
Koloss tvöfaldur brúnn vínill
Á plötunni veðrur að finna eftirfarandi lög:
01 – “I Am Colossus“
02 – “The Demon’s Name Is Surveillance“
03 – “Do Not Look Down“
04 – “Behind The Sun“
05 – “The Hurt That Finds You First“
06 – “Marrow“
07 – “Break Those Bones Whose Sinews Gave It Motion“
08 – “Swarm“
09 – “Demiurge“
10 – “The Last Vigil“